Losaðu líkamann við verki,
Endurstilltu taugakerfið

TAUGAKERFISMEÐFERÐ FYRIR ÞAU SEM VILJA MEIRA EN TÍMABUNDNA LAUSN

aÐalheiður svava hólmgeirsdóttir

Ég er Bowentæknir og ÍAK einkaþjálfari með miknn áhuga á heilsu og vellíðan. Í starfi mínu vinn ég með mildri og markvissri Bowen meðferð sem styður við náttúrulegt bataferli líkamans og hjálpar honum að endurheimta jafnvægi.

Ég legg áherslu á fagleg vinnubrögð, rólegt umhverfi og persónulega nálgun þar sem þarfir hvers og eins eru ávallt í forgrunni.


Þú ert hjartanlega velkomin/n í meðferð !

aðrar MEÐFERÐIR

  • Meðferðin er mild og róandi sem styður líkamann á tímabili mikilla breytinga. Með mjúkum og nákvæmum hreyfingum er unnið með taugakerfið til að draga úr algengum óþægindum eins og bak- og grindarverkjum, spennu í hálsi og öxlum, bjúg og þreytu.

    Markmiðið er ekki aðeins að lina verki heldur að skapa meira jafnvægi, dýpri slökun og aukna vellíðan fyrir móðurina á þessu mikilvæga tímabili.

  • SPM er meðferð þar sem unnið er með undirþrýsting á andlit eða líkama. Meðferðin er aðlöguð að þínum þörfum og getur stutt við slökun, flæði og ferskleika húðarinnar.

    Gott fyrir:
    slökun, húðslappleika, appelsínuhúð, spennu og almenna vellíðan.

    Gott að vita:
    Hægt er að vinna bæði með andlit og líkama

  • Notaleg andlitsmeðferð sem sameinar SPM, maska og súrefnishjálm. Markmiðið er að styðja við ferskleika, ljóma og slökun.

    Gott fyrir:
    þá sem vilja dekur, meiri ljóma og rólega endurnærandi meðferð.

    Gott að vita:
    Meðferðin er sniðin að húð og þörfum hvers og eins.

  • Súrefnishjálmur er slakandi meðferð sem getur stutt við ferskleika, vellíðan og ró. Hún er vinsæl bæði ein og með öðrum meðferðum.

    Gott fyrir:
    slökun, endurhleðslu, ferskleika og notalega vellíðunarstund.

    Gott að vita:
    Stakur tími tekur um 30 mínútur.

bowen MEÐFERÐIR

  • Meðferðin er mild og róandi sem styður líkamann á tímabili mikilla breytinga. Með mjúkum og nákvæmum hreyfingum er unnið með taugakerfið til að draga úr algengum óþægindum eins og bak- og grindarverkjum, spennu í hálsi og öxlum, bjúg og þreytu.

    Markmiðið er ekki aðeins að lina verki heldur að skapa meira jafnvægi, dýpri slökun og aukna vellíðan fyrir móðurina á þessu mikilvæga tímabili.

  • Meðferðin getur meðal annars hjálpað við óróleika, magakveisu, svefntruflanir og spennu, og er framkvæmd á rólegan og öruggan hátt með þarfir barnsins ávallt í forgrunni.

    Blíð og örugg meðferð fyrir barnið þitt.

  • Meðferðin hjálpar líkamanum að hægja á sér og losa um uppsafnaða spennu. Með mjúkum og markvissum hreyfingum er unnið með taugakerfið til að stuðla að dýpri slökun, betri endurheimt og aukinni vellíðan.

    Meðferðin hentar sérstaklega vel fyrir þau sem finna fyrir streitu, þreytu eða andlegu álagi og vilja gefa líkama og huga tækifæri til að endurstilla sig í rólegu og nærandi umhverfi.

  • Bowen við verkjum og gigt er mild en áhrifarík meðferð sem miðar að því að draga úr sársauka, minnka stirðleika og bæta hreyfigetu. Með nákvæmum og rólegum hreyfingum er unnið með taugakerfið til að losa um spennu og styðja við náttúrulegt bataferli líkamans.

    Meðferðin hentar vel fyrir þau sem glíma við langvarandi verki, gigtareinkenni eða stoðkerfisvandamál og vilja finna meiri léttleika og betra jafnvægi í daglegu lífi.